Jæja - áhugaverð helgi að baki. Var að brjóta múr með sleggjuhamri, braut rúðu og missti svo hamarinn stuttu eftir það ofaná löppina á mér - kræst hvað það var vont! Sá stjörnur í smástund, bara af kvölum LOL. Hugsaði með mér þegar ég hætti að stynja "Kommon, Jóhanna Ýr, þú hefur fætt tröllabörn, you can do this!"
Fyrstu "mistökin" (af örugglega mörgum) voru gerð í húsinu síðasta föstudag. Við Halldór höfðum alltaf rætt að einangra ekki loftin í kjallaranum strax, bæði væri það tímafrekt og kostnaðarsamt og það lægi engan veginn á því. Auk þess myndi lofthæðin í kjallaranum minnka svo svakalega að Halldór yrði orðinn höfuðleðurslaus ansi fljótlega ef við færum í það áður en við leggjumst í þær framkvæmdir að brjóta upp gólfin í kjallaranum til að auka við lofthæð. Eitthvað sem er á tíu ára planinu aftur á móti. Því hafði ég eytt miklum tíma í að snyrta loftbitana þar, sparsla þá og mála. Þegar smiðirnir voru svo að klára gólfið í nýja eldhúsinu var víst miklu fljótlegra að einangra áður en gólfefnið yrði lagt með því að hefta víra í fínu, nýsnyrtu bitana mína, og leggja einangrunina þar ofaná, og síðan leggja gólfefnið í eldhúsinu. Með því hurfu loftbitarnir nær alveg í kjallaranum og öll vinna mín þar fyrir bí (Halldór hafði meira að segja beðið mig sérstaklega um að sparsla þá, eitthvað sem mér fannst nú óþarfa pjatt en lét mig hafa það). Eftir það hefði svo átt að leggja loftplötur UNDIR loftbitana og minnka lofthæðina í kjallaranum um dýrmæta 5-8 sentimetra, og Halldór hefði aldrei getað gengið þar um, ja jú, þegar við förum einhvern tímann í að brjóta gólfið í kjallaranum, hvenær sem það nú verður.
Mín var ekki par ánægð þegar hún heyrði þetta ;o)
Ég benti Halldóri og smiðnum á þetta með lofthæðina og þeir litu hvor á annan og góluðu svo úr hlátri við tilhugsunina um að Halldór ætti að labba þarna um (við ætlum að notast við baðherbergið sem er í kjallaranum svo að Halldór slyppi lítið við að fara þarna niður). Lendingin var að klæða loftið á ögn öðruvísi hátt, pínu púsl en lofthæðin mun þó haldast. Karlmenn!!! ;o)
Sigrún Ýr kemur heim í dag, aðlögunin á nýja leikskólanum hefst á morgun. Hún hringdi í mig um helgina, hafði farið í sund með ömmu og afa og dregið tveggja metra langan afa sinn með sér í rennibrautina. Sagði svo skríkjandi: "Og afi festist í rennibrautinni." Þegar ég sagði Gísla Hrafni þetta gólaði hann líka úr hlátri. Litla skottan hefur aldeilis náð að vefja afa sínum um litla putta ;o)
Gísli Hrafn fór í pössun til Jón afa á laugardaginn. Þeir krúttuðust saman, gerðu tilraunir og hvaðeina og var það sáttur strákur sem kom heim eftir heimsóknina til afa síns.
En nú þarf ég að klára kynninguna fyrir morgundaginn.
Gamla kveður, með fjólubláa löpp og ógurlega stirt bak...