Jæja - Ella "frænka" á stórafmæli í dag - hún er reyndar mjög leiðinleg, hún verður glæsilegri og glæsilegri með árunum og það þarf að fara að hafa samband við Íslenska Erfðagreiningu því hún ögrar öllum náttúrulögmálum. Óþolandi fyrir okkur hinar ;o)
Svo eiga Heiða og Hannes merkilegan dag í dag - ætla að láta pússa sig saman. Hugsa til þeirra á þessum merkisdegi.
Og svo... fengum við Halldór litla íbúð í gær! Steinunn vinkona reddaði okkur henni og við erum í skýjunum. Eins og ég hef margsagt þá fór vel um okkur hjá Appabei og Gaua en það er ekki það sama og að vera útaf fyrir sig, leyfa krökkunum að drasla til og góla á laugardagsmorgnum og svo videre ;o)
Nú þarf bara að spýta í lófana og koma kjallaranum í stand til að við getum tæmt gáminn!
Djö er þetta flottur dagur!!! :o)