Það er mikill spenningur á heimilinu þessa dagana. Nína fer loks að sameinast okkur og teljum við öll niður (ég er verst, bara fel það svolítið til að halda kúlinu fyrir framan börnin). Þórunn og ég erum líklega álíka slæmar af spenningi enda búnar að plana reunion á fimmtudaginn þar sem við förum beint heim til þeirra eftir að hafa sótt Nínu á flugvöllinn og ætlum að sofa öll heima hjá henni og Jóa svo að Nína fái sem mestan tíma með uppáhaldsfólkinu sínu. Þurfum reyndar líka að halda uppá afmælið hennar Nínu þar sem hún var eins árs 3. ágúst síðastliðinn en var þá ekki með okkur :o(
Eigandi einangrunarstöðvarinnar í Hrísey sendi okkur þessar myndir af henni um daginn og sagði það hafa verið erfitt að taka mynd af henni, hún væri svo hress og kát og sífellt á hreyfingu. Krúsla!



Svo að 8. október í ár verður sérstaklega spennandi!
Kræst hvað mig hlakkar til!